Ragna&Gígja<3

23.04.2008 18:03:26 / sveitalubbar

Allir í leikhús!

"Þar sem Djöflaeyjan rís"

Næstu sýningar:

Miðvikudaginn 23. apríl kl 20:30 - UPPSELT
Föstudagurinn 25. apríl kl 20:30
Laugardagurinn 26. apríl kl 20:30
Sunnudagurinn 27. apríl kl 16:00

Endilega allir að mæta og panta sér miða!
Pöntunar síminn er 464 - 3145

Við sveitalubbarnir biðjumst afsökunar á öllu þessu bloggleysi hérna en við bara nennum enganveginn að blogga hérna!;) Það er samt allt gott að frétta af okkur og eins og flestir vita höfum við nóg annað að gera heldur en að blogga, svo þetta situr á hakanum, en gæti komið fyrir einn daginn að koma eitthvað skemmtilegt hérna inn;)
Hafið það gott elskurnar og hvetjum alla til að mæta á sýningu hjá okkur, gott verk þarna á ferð:D

Ragna & Gígja;*


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 17:52:42 / sveitalubbar

,,Rakel ýttu á spila allt! þetta er hreyfiskjár.."

Sælt veri fólkið;) ..við sveitalubbar nennum ekki að blogga hérna svo nokkrir punktar hvað hefur á dagana drifið:
  • Komumst loksins í PÁSKAFRÍ:D:D
  • Konukvöld Völsungs heppnaðist glæsilega og allt frábært, gríðalega gaman og mikið stuð:D ..þó við hefðum ekki fengið að vera á ballinu! En takk fyrir kveldið stúlkur;**
  • Fórum á leik hjá strákunum okkar inná Akureyri, því miður tap þar:/
  • Stelpu kveld heima hjá Indu;) Þar bjuggum við til Salsa í fyrsta skiptið, og heppnaðist líka svona vel:D takk fyrir kveldið stúlkur stúlkur;**
  • Læra, búa til ritgerðir!!
  • Frí frá leikæfingum en tókum eina góða söngæfingu saman;) frumsýnt nefnilega 5. apríl :D:D
  • Kepptum á móti Fylki í boganum æfingaleik, fínt leiku bara;)
Segðum þetta gott í bili, komnar myndir frá Konukvöldinu í Myndasöfn ef þið hafið áhuga á að skoða, svo bara commenta elskurnar;)

En við í Meistaraflokk kvenna erum farnir til ALBIR:D:D


Ragna&Gígja <3


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 18:47:52 / sveitalubbar

This is my life*

Þá komsins komum við okkur í það að rita hérna eitthvað handa ykkur.. þið vita nú örugglega flestir hvernig við erum, getum ekki sagt nei og því erum við í öllu svo tíminn er ekki mikill;) En við skulum bara segja eitthvað frá því sem hefur á daga okkar drifið síðan í síðasta bloggi!:lol:
Í síðustu vikur var bara skóli, lærdómur og æfingar eins og alltaf! En enduðum þá viku á að fara allur skólinn á Vestmannsvatn sem var allt þakið þykkum ís og þar var leikið sér;) 

Við vorum mest í bandý á svellinu og maður komst valla úr sporunum og flatbotna skónum, svo var farið áslöngu aftan í bíl á fullu og þvílíkt rugl í manni, maður þurfti að halda fast svo maður dytti ekki bara af en þvílíks snild og fengið sér svo horn og kakó áður en lagt var af stað heim;)

Bandý í fullu gangi
Þar síðasta helgi var svo bara tekin á léttu nótunm og verið að njóa lífsins. Undan keppni Júróvision var á laugardagskveldinu og að vana var partý í Hamraborg með Hamrafjölskyldunni;) Þar var komið saman, étið steinateik og meðlæti, nammi og skemmt sér konunglega! Úrslit fóru mis vel í menn en lag okkar Íslendinga semsagt "This is my life" með Regínu og Friðrik Ómari sem var bara það fínasta. Svo voru bara æfingar og notið lífsins þessa helgi;)..


Síðasta vika fór svo bara í það að læra, læra og læra!! ..svo fótboltaæfingar, fótboltaæfingar og fótboltaæfingar..svo leikæfingar, leikæfingar og leikæfingar.. og svo söngæfingar og söngæfingar;) Við semsagt höfum nóg að gera sveitalubbarnir um þessar myndir og því kannski ástæða fyrir bloggleysi!
En Djöfleyjan er öll að koma og þetta verður alveg þvílíkt flott og við mælum náttla með að allir komi á þetta snildar leikrit! Erum svo alltaf að syngja með Pétri fyrir leikritið og við "4 fallegar" eins og við erum kallaðar erum að fýla okkur þarna á pallinum með bárujárnið aftan við okkur;) Fótboltaæfingarnar nú líka alltaf á sínum stað og við æfum á víkinni eins og við getum og unum þar vel með stúlkunum okkar.. btw erum á leiðinni til ALBIR eftir 18 DAGA stúlkur!!:D:D Skólinn gefur ekkert eftir og við eigum eftir að gera einhverjar ritgerðir og svo náttla heimalærdómurinn ekkert lítill. Á fimmtudeginum var svo æfing með sjálfum Lúka Kostic sem er að þjálfa unglingalandslið karla. Alveg magnaður kall og sýndi manni margt áhugavert og skemmtilegt og þessum manni vantaði ekki húmorinn. Annar mjög góð æfing hjá karlinum:D

Um helgina var Árshátíð FSH á hótelinu á Húsavík, og Elfar elskan bauð manni nú með sér;) Byrjaði  á að fara til Hafrúnar elskunar og við græjuðum okkar þar, gerðum okkur nú sætar og fínar og klæddum okkur í kjólanna. Þetta var alveg gríðalega flott árshátíð í alla staði og ég skemmti mér alveg konunglega:D Ljótu hálfvitarnir voru veislustjórar, svo var sungið mikið og skemmtiatriði.

Gulla Sigga og Rafnar voru herra og ungfrú FSH, rosalega sæt saman þessi krútt:D;* Svo var Unnur E valin bros FSH sæta sæta, AnnaGuðrún ljóska, Ingvar húmonisti, Bjarki frændi töffari og margt fleira. Svo var diskó á eftir og þarf var dansað eins og maður gat þó labbirnar hafi ekki verið alveg hæfar í dans en maður gat nú ekki sleppt þessu!;) Sem sagt gott kveld í alla staði :D Gígja var heima með Grimsa að krúttast eitthvað í hveitinu á þessu yndilsega föstudagskveldi.


Það eru svo komnar myndir inn í "Myndasöfn" frá árshátíðinni;)
Á laugardeginum var svoo vaknað eldsnemma og skellt sér inná Akureyri! Við ásamt elskulega fólkinu okkar, Fanney, ÖrnuBenný og Jonna fórum upp í Hlíðarfjall á bretti, draumurinn loksins rættist að fara á bretti;)

 




Vorum um 3klst í fjallinu og fínu veðri bara og Jónas kjéllinn kenndi okkur helstu tækni til að geta rennt sér almennilega á bretti og við vorum bara orðnar nokkuð færar á þessu og í endan farnar að standa nokkuð lengi;) Alveg snildar brettaferð og ekki slæmt að enda hana svo í Sundlaug Akureyrar þar sem við skelltum okkur smá í heitapottinn:D Takk fyrir ferðina elskurnar;** Getum vonandi sýnt ykkur myndir frá þessari ferð bráðum!
Svo lá leiðin til Húsavíkur þar sem kveldinu var eytt í leti og farið snemma að sofa eftir góðan dag! Svo var æfing á sunnudeginum, um kveldið skellti ég(Ragna) mér á Kardimomubæinn hjá FSH og það var bara hin mesta skemmtun:D

Nú er ný vika byrjuð og ekkert skárri! Námið komið á sinn stað í dagbókina og svo er grunnskólamót sem við ÍFL stjórn erum að halda og því fer mikill tími í undirbúning í það, það er einmitt á föstudaginn;) Svo æfingar og leikæfingar.. þannig vikan er þétt setin hjá okkur stúlkunum, svo þessu bloggi mun nú ljúka í bili! Hafið það gott elskurnar og njótið lífsins;**


Gígja&Ragna*


» 17 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 17:04:57 / sveitalubbar

But I don't care what they say, I'm in love with you*

It doesn't matter how others see you..

Góðan og blessaðan daginn öll sömul!
Ákvað að henda inn einu bloggi  og segja aðeins frá viðburðum helgarinnar, en þeir voru ekki af skornum skammti líkt og áður ;) en ætlum aðeins að tilgreina frá þeim, og gjörðiðisvovel*
Byrjuðum á þemadögum á föstudaginn. Við fórum á snyrtinámskeið hjá Snyrtistofunni Hilmu//Kiddý og Erlu, kemur mönnum kannski á óvart? allavega okkur langaði svolítið að læra að mála okkur til að kunna það í þessi fáu skipti sem maður gerir þann óskunda, svo maður líti ekki alltaf út eins og klessumálverk á eftir! bara svona láta ykkur vita að við erum nú ekki að fara að breytast í e-rjar meikdollur eftir helgina!;) við lærðum að gera svona dag- og kvöldförðun, smokie (það er svona ýkt förðun fyrir þá sem ekki vita//eða svona eins og módelin eru alltaf) og svo fantasy (þá mátti maður bara gera allt sem manni datt í hug! voða spennó).  Fórum svo á Tónkvíslaræfingu,  og það var töf á henni (svona eins og alltaf í sambandi við allt í kringum Tónkvísl:P) og um kvöldið fór Ragna með Elvari að hitta Elfar á Húsavík og fóru þau öll 3 á handboltaleikinn og svo í köku til Áslaugar og co. á meðan Gígja sat ein, gömul og guggin heima við tölvuna...
---------------------------------------------------------
Á laugardaginn var svo aftur snyrtinámskeið og fengum við allar á námskeiðinu að fara í vax og litun á augabrúnunum + lit á augnhárunum. Voða kammó og rólegur morgunn þar á ferð. Að vísu smá sársaukafullur, líka þegar maður var að fara í svona í fyrsta skipti (Gígja) en menn stóðu sig með prýði!! Eftir hádegi var svo Tónkvíslaræfing sem átti að byrja kl. 13 en við (sem vorum nr.2 að syngja á æfingunni) sungum kl. 14:25 - smáá seinkun vægast sagt!! Brunuðum svo eftir hana inn á ak. þar sem við vorum að fara að keppa æfingaleik á móti Tindastól og vorum svona frekar í seinna laginu. En fórum sem sagt með Kiddý//the driver, Örnu Bennýju og Indu og var þvílíkur Ný dönsk stemmari á leiðinni. Leikurinn endaði 8-2 fyrir okkur - settumst á Stólana!! een hefði alveg mátt fara betur. Byrjuðum illa - svo kom góður partur - og svo enduðum við frekar illa .. en allt í lagi leikur bara. Og eftir hann fórum við aftur heim í sveit á general fyrir Tónkvísl, héldum að við værum agalega seinar því hún átti að byrja 18 og við mættum 19:30 en þá voru bara 3 búnir að syngja  og við þurftum að bíða og bíða - surprise surprise!! En eftir hana ætluðum við svo að bruna á Húsavík í mfl. partý  hjá Helgu en þá bauð Rakel okkur í risa-pizzu til hennar og Arnar sem voru heima og við ákváðum að fara og stoppa í korter hjá þeim. Korterið varð svo að 1 og 1/2 tíma en við skemmtum okkur samt vel og sjáum ekki baun eftir þessu!! En svo fórum við í partýið og spjölluðum, borðuðum nammi og salsarétt og hlógum og svo framvegis!!:) það var bara stemmari í því. Tókum síðan nokkrar léttar beygjur og fórum svo heim í háttinn.

Við í augnbrúnalitun =)

Í risa-pizzu hjá Rakel og Arnari og svo að bruna á Húsavík -

í partýi hjá Helgu =)

Síðan rann sunnudagurinn upp. Við mættum á æfingu ýkt ferskar og hressar! En gerðum ekki mikið, hlupum bara og teygðum á og svo horfðum við bara á leikinn við Tindastól (hann var nefnilega tekinn upp). Agalega asnalegt að horfa á sjálfan sig vera að spila, lærðum líka alveg slatta af þessu og fínt að gera þetta svona einstöku sinnum sko. En eftir æfingu var brunað í sveitina fögru og tekin sturta, græjað sig fyrir Tónkvísl. Mættum síðan í íþróttahúsið og fórum að farða hina keppendurna (snyrtinámskeiðsnemar áttu nefnilega að gera það) og urðum farðaðar;) Síðan byrjaði Tónkvísl, helling af fólki mætt og þvílíkur stemmari. Allavega þá var þetta bara fínasta kvöld, og okkur gekk barasta vel. En úrslitin urðu svona ;
Framhaldsskólakeppnin:
1. Hjalti Rúnar Jónsson
2. Andrea Stefánsdóttir og Einar Guðmundsson
3. Anna Signý Magnúsdóttir

Grunnskólakeppnin:
1. Sigrún Helga Andrésdóttir
2. Hulda Kristín Baldursdóttir
3. Björn Grétar Baldursson, Ísak Már Aðalsteinsson, Hildur Ingólfsdóttir, Indíana Þórsteinsdóttir og Jóhanna Ásdís Baldursdóttir.

Hjalti kall vann þetta sem sagt, hann söng Wicked game og það var ekkert eðlilega flott! gæsahúð og læti á meðan hann söng sko! Allavega þá var það alveg hárréttur dómur og hann átti þetta sko 100% skilið enda var hann laaang flottastur:);**
http://www.nfl.is/vefur/frettamyndir/hjalti_tonkvisl.jpg

Á mánudaginn var svo síðasti þemadagurinn, og við á snyrtinámskeiðinu. Fórum í umhyrðu húðar og nudduðum hvor aðra, hreinsuðum og settum maska og helling af dæmi - bara ekta meðferð (a) bara dekur og læti hjá manni. Fórum svo í áheitasöfnun með Indu, Örnu Bennýju og Hallgrími og það gekk bara vel, náðum að safna flest öllu og eigum bara lítið eftir. Um kvöldið fórum við svo á akureyri að keppa æfingaleik við Þór. Hann gekk alveg ágætlega, menn voru misgóðir, en við töpuðum 7-2. Úrslitinekki alveg að segja samt allt um leikinn. En margir stóðu sig vel og aðrir slatta verr, eeen annars var þetta bara fínt! svo klikkað gaman að fá að keppa á svona stóóórum velli, e-ð annað en er á Húsavík.. en nóg um það!

-----------------------------------
En þá er enn ein vikan byrjuð. Búið að fresta frumsýningu á Djöflaeyjunni til 3. apríl þannig að það er ekki alveg jafn mikið stress í leikritinu een alveg nóg að gera samt. Skólinn er alveg brjál og svo æfingar á fullu,bæði fótbolta og leikæfingar + söngæfingar fyrir leikritið, sem btw er klikkað gaman á!! syngjum og fíflumst og það er sko brjálað gaman :) svo er þessi fjáröflun alveg að fara á fullt gas líka, enda bara rúmlega 30 dagar í Albír - yeah baby yeah!!


een ætli við segjum þetta ekki nóg í bili, endilega að commenta krakkar mínir :) og svo viljum við minna á nýju síðuna okkar stelpnanna í mfl. Völsungs ;
http://volsungur.bloggar.is      <-- endilega að kíkja á hana ;)
og einnig inná nfl er hægt að sjá sigurlagið hjá Hjalta, myndbandið að því. Gaman að horfa á það enda alveg klikkað flott, en ef þið viljið þá er þetta linkurinn ;
http://www.nfl.is/vefur/?p=spjall&id=531    en ef hann virkar ekki þá er það bara inná nfl.is og spjallið og þá getið þið sé linkinn :) en endilega að skilja eftir spor og fylgjast svo með Nýjast* dálknum hérna í horninu og tjékka á ýmsum nýjungum.

...what matters most is how you see your self!*


Gígja og Ragna





» 15 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 16:58:24 / sveitalubbar

Afsakið bloggleysið :/

Jáá loksins komum við okkur í það að blogga hérna nokkra stafi, en ástæðan fyrir bloggleysi er bara það að við höfum engan tíma þessa stundina!:/ En getum allavega byrjað á því að segja frá síðustu helgi sem var voða fín;)
Á föstudaginn tók Ragna verkelga og munnlega bílprófið og náði því þannig að þá var bara að bíða eftir afmælinu til að fá að keyra! Við gellurnar ákváðum að eyða þessari helgi með stákunum okkar á Víkinni og fórum þangað í vindinum á föstudagskveldið eftir söngæfingu fyrir leikritið! Lítið var gert það kveld nema haft það kósý og horft á sjónvarpið;)
Á laugardeginum fórum við svo á þrusu æfingu en eftir hana var maður með frekar mikla strengi en hafði gott að því. Svo var bara brallað eitthvað og skellt sér svo á nammirúnt með gellunum Beggu og UnniE sem var rosa gaman og mikið spjallað með nammipokanum góða;) Var okkur svo boðið ásamt drengjunum í salsa til Unnar E og Begga beib var þar líka. Þar var auðvitað borða rosa gott salsa ala Unnur og étið nammi þar til maður var að deyja í magnaum og hlustað svo á tónlist og spjallað!:D

Þegar klukkan sló svo 12 var kominn 10. febrúar sem þýðir að Ragna átti afmæli, 17 ára og fljótlega var svo farið á lögreglustöðina til að ná í ökuskirteinið! Við stöllur fórum saman inná stöð og voru frekar smeikar að banka þarna upp (sáum víst ekki bjöllu sem átti að hafa verið þarna) en svo var þetta bara fínt og Ragna fékk ökuskirteinið í hendurnar og það var farið að rúnta um Húsavíkurbæ á bílnum hans Grimsa;) Getum ekki sagt að Elfar hafi verið að skemmta sér þar sem stress og ótraust fór um hann vegna ökumannsins en svo kom þetta allt þegar hann sá hve góður ökumaður sat undir stýrinu:P Allavega rúntuðum við með geisladiskinn sem Ragna fékk í gjöf frá Gígju á fóninum eitthvað fram eftir nóttu!:D



Elskulegt fólk;**

Um hádegi var svo æfing sem við skelltum okkur á og svo var brunað beint inná Akureyri til að sjá Mfl. Karla keppa við Tindastól og sá leikur fór vel og strákarnir sigruðu hann 5-2 með glæsibrag, og auðvitað skoraði Elfar eitt afmælismark handa kellunni sinni en Grímsi þurfi að fara útaf vegna meiðsla á hnénu:s Góður leikur og góður stemmari á línunni hjá okkur stúlkunum!:D Brunað var svo heim í sveit og afmæliskaffi tók við þar sem eitthvað að fólki kom saman, hló og skemmti sér og át yfir sig af kökum;) ...góð helgi á enda!

 

Vikan byrjaði svo og framundan eru margir atburðir sem æfa þarf fyrir og þvi valla laus tími í vikunni til að vera heima og hvíla sig! En á sunnudaginn næsta er Tónkvísl sem við erum víst að fara að keppa í og því erum við að æfa í vikunni og svo eitthvað um helgina, svo erum við í leikritinu sem er verið að setja upp og æfum það auðvitað líka og það verður frumsýnt eftir tæpan mánuð svo það er nóg að gera í því, auk þess erum við á fullu í skólanum og ekkert lítið að læra og svo fótboltinn auðvitað líka á fullu og tveir æfingaleikir framundan þannig þetta er alveg nokkuð þétt dagskrá næstu daga svo þið verðið að afsaka þetta bloggleysi okkar!;$

 

Semsagt þrusu helgi framundan sem mun koma blogg um síðar!;) Þannig held þetta sé komið nóg í bili og við bloggum vonandi brátt aftur og förum að vera duglegar að taka myndir til að geta komið með eitthvað nýtt hérna til að sýna ykkur, og svo mánaðirns líka;) Kveðjum í bili og hafið það gott elskurnar ;**

Ragna&Gígja <3


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 15:50:03 / sveitalubbar

I only wanna be with you again <3

"Everything is gone without you now
I never want to live without you
I only want to see you one more time
Don’t go away, don’t go away"

Jæja þá er önnur vika liðin í skúlen og þetta líður svo hratt að vikan er búin áður en maður veit af!;)..allvega fór síðasta helgi þannig að það var ekki gott veður og við komumst ekki að keppa á Egilsstöðum:/ Frekar leiðnlegt að fá ekkert að keppa en við fáum í staðin 3 leiki í febrúar eða svo!

En vikan var nú bara fín, alltaf leiðinlegt ða byrja á nýrri viku og sjá öll nýju verkefnin og það sem maður á eftir að gera alla vikuna:/ Við erum nú alveg í slatta í þessum skóla svo það er ekkert hægt að slaka á þessu blessaða námi svo allt er á fullu! Lærdómur, æfingar og félgslífið sem hefur verið frekar slappt upp á síðkastið en vonum það lagist von bráðar og fólk fari að gera eitthvað í því, eða bara hafa þessa smá viðburði á þeim tíma sem maður kemst!!! En annars er maður búin að vera frekar þreyttur og ekkert verið að taka verulega á nema þess þurfi, þreyttur líkaminn verður nú að fá einhverntímann hvíl, er það ekki!?.. Líka gaman að segja frá því að við stöllur skráðum okkur í Tónkvíls, undankeppni FL fyrir söngvaakeppni framhaldsskólanna, eftir mikla pressu og ákveðið var fyrir okkur næstum lag þannig við gátum nú ekki annað en skráð  okkur, en þetta verður fínt. Ætlum að synja If með Land og sonum, voða fallegt og flott lag þó það sé smá væmið en ég meina flott raddað og þannig. Þetta verður fínt! Hún er einmitt 17. febrúar og maður verður víst að fara að hugsa eitthvað um þetta..
Fengum svo samninga hjá Völsung í gær sem við þrufum að skrifa undir! Sumarið verður stór gott hjá okkur stúlkunum og vonandi mun draumirnn rætast að við förum upp í landsbankadeild? Allavega erum við með sterkt lið og getum þetta vel;)

----------------------------------------------------------------

En í sambandi við íslenska landsliðið okkar!? ..þeir hafa nú ekki verið að gera rosalega góða hluti á EM í ár en hafa þó átt góða kafla og eru alveg með hörku lið þegar þeir komst í gang og geta rústað þessum liðum eins og þeir hafa sýnt í tvem leikjum eða svo:) Maður hefur verið að fylgjast með leikjunum og það er nú misgaman en svona er þetta, fengum meira að segja að horfa á leikinn á breiðtjaldi í skólanum í gær! En þeir munu bara taka þetta á næsta ári svo landsmenn geti verið stoltir!:D Eða eins og GuðjónValur sagði eftir leikinn í gær: “Við þurfum að læra af þessu móti. Það er vonandi að leikmenn verði þeim mun brjálaðari og betur undir þetta búnir andlega og líkamlega þegar þetta byrjar aftur,” En við styðjum strákana okkar í blíðu & stríðu**


http://www.ibliduogstridu.is/

----------------------------------------------------------------

En helgin er komin aftur og ekkert ákveðið um helgina nema mfl.kvenna er að fara að hlaupa fræga áheitahlaupið frá Húsavík til Mývatnssveitar á sunnudaginn og það verður rosa stuð og mikil stemming og vonandi gott veður svo hægt sé að gera þetta!;) Líka gaman að segja frá því að Ragna fór í bóklega bílprófið í morgun og náði því, sem er rosa gott mál bara:D:D Gígja er svo að fara á þorrablót í Mývatnssveit, mjög líklega, í kveld að skemmta sér þar með mývetningum;) Annars verður helgin tekin með ró og vonandi getum við skellt okkur á leikinn á morgun hjá strákunum! En annars held ég að við ættum bara að segja þetta gott í bili og enda þetta með nokkrum góðum myndum sem við fundum í mögnuðu blandi í tölvunni;) Munið nú að fara varlega! Hafið það gott elskurnar;* Btw vorum að láta inn blandmyndir hér til hliðar sem eru misgamlar og góðar og einnig er ný skoðanakönnun - alltaf gaman að taka þátt í þeim(a)!!*..

 

 


Gaman að sjá á þessari mynd hvað þessir 3 fremstu eru mikið fyrir dansinn og hafa alltaf verið*


HannaJóna og Sigrún elskurnar, sem er sárt saknað;* 

 

Ragna&Gígja* 

 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 16:34:03 / sveitalubbar

Bloggos for ár HarposBorghildi!! =)

Sæl og blessuð veriði öll! Við ákváðum nú að vera góðar við borgarpíuna okkar og blogga fyrir hana svo að hún hafi nú e-ð að gera þarna fyrir sunnan, enda hlýtur manni að leiðast ef maður byggi þar!!(a)hah ..

En annars er allt fínt að frétta af okkur! skólinn bara kominn í fullt gang een ekki alveg samt sami stemmari og fyrir áramót, enda skammdegisþunglyndi í þessum Vopnfirðingum og Valdi, Lárus og Jonni hættir og þar með allt sófakúr í frímó, þannig það má segja að hálfan skólann vanti í skólann!! ..en það hlýtur nú að fara að lagast -er lægð yfir landinu eða??*

Æfingar í fullum gangi, bæði á Húsó og Laugum. Þannig maður er að komast í ágætis form, eða vonandi allavega. Átti/á að vera æfingaleikur á mrg á Egilsstöðum við Hött eeen fólk er e-ð hrætt við þetta veður þannig að ekki er enn ákveðið hvort e-ð verði úr því!!"/ sem er ekki nógu gott.. maður hefði nú skellt sér suður og skoðað þetta frændfólk sitt og knúsað een sleppti því af leiknum sem verður svo kannski ekki... þá verður maður nú ekki upp á sitt besta!!:O
Og svo erum við á fullu í að safna fyrir Spánarferðinni!:) það hefur sko ekki gengið illa hjá okkur, erum búnar að vera að safna áheitum því við ætlum að hlaupa frá Húsavík (gegnum Aðaldal og Reykjadal) og alla leið upp í jarðböðin í Mývatnssveit! þann 27.jan.nk.;) en allt hefur gengið vel og fólk duglegt í að styrkja oss þannig að þetta er allt á réttri leið!!:lol:


Een ætli við segjum þetta ekki gott í bili, ætlum að fara að horfa á leikinn hjá strákunum okkar á EM og vona það besta!!;) komum með ferskt blogg bráðlega en þangað til verður þetta að duga;)!! Hafið það gott elskurnar, elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn!!**

ást ást ást!<3**

Gígja Valgerður og Ragna


» 12 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 15:56:44 / sveitalubbar

Sorry, blame it on me!!*

já, við beiluðum!! reyndar ekki viljandi en það er samt víst!! viljum biðjast afsökunar til eftirfarandi ástvina ;

Inda okkar [fyrirgefðu innilega -- en við hefðum hvort sem er bara náð 30mín. saman áður en þú hefðir þurft að fara heim"/ een það kemur nýr Palli e-hrn tímann!!=) allavega fyrirgefðu ástin okkar!! elskumþig!!**]

Rakel okkar [fyrirgefðu innilega!! allt of langt síðan við höfum sést en það verður víst bara að betri tíma og Palli að bíða betri stundar!!* eeen við áttum samt inni beil hjá þér síðan í haust þannig að núna erum við bara even!! er það ekki??(a) heh .. allavega fyrirgefðu ástin okkar og við verðum að fara að hittast!! elskumþig!!**]

Börkur okkar [fyrirgefðu innilega!! hefði verið gg að komast en því miður verður það að bíða betri tíma!! vona þú hafir skemmt þér & við verðum að fara að hittast!! allt of langt síðan síðast, held við séum öll sammála um það!!?? en allavega fyrirgefðu ástin okkar!! elskum þig!!**]

og síðast en ekki síst ; Páll okkar Óskar!! [fyrigefðu að við mættum ekki í tjúttið!! en við mætum sko galvaskar næst og dönsum af okkur bossann! vonum að þú hafir það í þér að fyrirgefa okkur þessi hræðilegu svik! sjáumst hress*** elskumþig!!**] haha (a)

Sagan er samt þannig að við ætluðum bara að bruna inn á ak. eftir æfingu hjá Hallgrími í gærkveldi - en hann tafðist á henni því að hún varð lengri, og svo var svo hált og við hefðum náð svo stuttum tíma, vorum dottnar úr öllu stuði og allt í volli!!

En við vonumst bara eftir fyrirgefningum!! een það er mjög erfitt því eins og fólk segir ;
,,Trúi ekki að þið beiluðuð á PALLA!:O"

En þannig fór um sjóferð þá!! strákarnir okkar eru núna að keppa í poweade-mótinu á ak. inní Boga, og við sveitó [við + ArnaBenný] ætluðum að gera gjélluferð úr því að fara að horfa á þá - en þá kom upp sama staða og í gær, e-hr beilaði á okkur systrum.. en það bíður bara betri tíma!:)

Hafið það annars bara gott og endilega commentið á þetta "skemmtilega" beilerblogg!! .. ef þið hafið það í ykkur og hafið áhuga á!!;)

elskumykkur**
Gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki beila á henni!!



Ég skal berjast, ég skal líka slást!
til að eignast hlut í þinni ást!!

ójá við berjumst Palli!!*
kveðjur beilerlubbarnir
*Gígja & Ragna*

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 20:52:39 / sveitalubbar

ááá Spáni'er gott að djamma & djúsa diskótekunum á!!!*

Jújú mikið rétt, varla hægt að tala um annað þessa dagana!! en við mfl.kvenna erum að fara til Spain um páskana!!:haha::haha: mikill spenningur yfir því og skemmtilegheit, söfnun fer von bráðar af stað og við bara nokkuð bjartsýnar yfir þessu! en meira um það síðar..

Jólin búin!! Kvöddum þau í gær, og nú er alvaran sko tekin við!!! En annars voru þetta nokkuð ljúf jól, eins og þau eiga að vera. Fórum samt á frekar margar æfingar miðað við áður en það er fínt til að ná jólaspikinu af!:lol:
Í dag fórum við svo í umsjón í skólann, já þið heyrðuð rétt skólinn er BYRJAÐUR!! að vísu ekki mikið að gera í dag, en á mrg verður nú e-ð meira að gera, allavega að kaupa bækur og svona.Hallgrímur sem sagt byrjaður í Laugaskóla, fluttur í Hamra og læti!! nú verður sko tekið á því!! hehe:) Fínt samt að fá allt fólkið aftur, þó að maður sé ekki aaalveg tilbúinn í lærdóminn, en það kemur;) allavega vonandi ..

Annars er voða lítið að frétta af okkur, bara æfingar og svo skólinn náttúrulega byrjaður. Æfingaleikur og fjáröflun á dagskrá á næstunni, oooog svo PALLI á föstudaginn!!!:haha::haha: það verður klikkað gaman!! Laugar fjölmenna þangað, vonum það allavega þegar við litlu getum loksins djammað með þeim! þið gerið það fyrir okkur, er það ekki?? Allavega förum við með Indu okkar því gjéllan verður orðin 16, úlalala!! - úlalala æ lovjú beibíj, úlalalala lovmí túnægt!!
Ooog vonandi líka að Rakel & Börkur komi og tjútti smá með okkur, það væri gaman!:) og svo náttúrulega kæró, BjarkiBadda & Bjarki Breiðfjörð og þannig lið!:D því má ekki gleyma!

 
En við ætlum að segja þetta gott í bili, verðið bara að afsaka hvað þetta er lélegt blogg!"/ en við ætluðum nú bara að segja ykkur elskunum að við séum á lífi og segja svona frá næstu viðburðum!=) vonum að þið sjáið ykkur fært um að commenta og svona, endilega takk!*
Hafið það svo gott & vi ses på Palle, elske Palle!!:haha:* - Stanslaust stuð að eilífu!!

elskumykkur!! <3**


Ykkar Gígja & Ragna*


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:59:53 / sveitalubbar

2007 ---> 2008*

Komdu með mér í gamlárspartý, gamlárspartý, gamlárspartý
og fögnum nýja árinu með stæl!

Komdu með mér í gamlárspartý, gamlárspartý, gamlárspartý
já komdu með og ekkert væl..
 
Jú mikið rétt.. það er kominn 31.desember!! Tíminn hreinlega flýgur og fyrr en varir þá verður skólinn byrjaður:o:| en allavega þá ætluðum við bara rétt svona að segja að við værum á lífi og koma smá tilkynningu á framfæri =)

Byrjum á að óska ÍsakiMá til hamingju með 15 ára afmælið í dag og vonum að þú njótir dagsins í botn!;) Til hamingju krúttsprengja!=) <3

Við sveitalubbar bjóðum hér með gleðilegt nýtt ár og þökkum um leið það gamla - allt gamalt og gott - en sérstaklega
 
Síðasta skólaárið í Litlulaugaskóla*

Danmerkurferðina í vor*
hún var svo æðisleg! takk æðislega fyrir krakkar, frábær leið til að enda þetta tímabil og byrja annað!!***

SVÍÞJÓÐ*

það var svo ljúft og æðislegt! Gothia cup er best! Förum án efa e-hrn tímann aftur, sammála eða?=) verðum bara.. þetta var æði!! takk mest****
 
Laugaskóla og öllum ykkur sem við kynntumst þið eruð æði*

Sumarið*
mfl.kvenna - þetta var bara frábært sumar! látum það næsta ekki vera verra og förum upp!!**

Allar aðrar ánægjustundir með ykkur elskunum á árinu 2007 og vonum að þær verði miklu fleiri árið 2008******

Vonum að þið njótið kvöldsins/næturinnar í botn og skemmtið ykkur vel & lengi. En einnig viljum við minna á að það er ráðlegt að
ganga hægt um gleðinnar dyr!**
Njótiði kvöldsins elskurnar. Við sveitalubbar þökkum samfylgdinnar á árinu og hlökkum til þess næsta. Hafið það gott krúttsprengjurnar okkar og
Gleðilegt nýtt ár --- 2008!!**

Förum saman í nýárspartý!!

Ykkar sveita/nýárslubbar**


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 22:48:00 / sveitalubbar

Skyld'ða vera jólahjól??

Jújú mikið rétt.. jólin nánast komin!! En við ætlum nú að blogga almennilegt jólablogg á mrg, þannig þið getið alveg sofið vært.. reyndar varla hægt svona night before christmas!=)

En vorum að koma af Laugasels skemmtun sem var, já eiginlega bara snilld! Voða gaman að koma svona saman almóst öll sveitin bara og drekka súkkulaði og borða eplaköku a la RagnaÁrna, mmm það var sko gott. Svo sungum við nokkur vel valin lög úr Söngleikjum og það var bara voða kammó, smá roði í kinnar og stress í gangi.. en heppnaðist vel og manni hreinlega langar bara að fara sýna þetta aftur! Bræður okkar + stelpur úr þeirra bekk fluttu svo frumsamið lag, Jólanótt, sem var svo krúttlegt! Maður fékk bara gæsahúð og læti!

- Þegar ég vakna um morguninn liðin hún er.
Ég vil fá hana aftur en bíða ég þarf.
Ljómar stjarna á jólanótt,
ljómar stjarna á jólanóóóótt!
Agalega flott hjá þeim sko. Sungum svo lög, gamli kórinn, sem var gaman sko=) alltaf gaman að rifja upp gamla takta (a)
Allavega þá var þetta bara mjög hugljúf og sæt kvöldstund. Takk fyrir hana öll sömul*

 

Litla jólabarn, litla jólabarn
ljómi þinn stafar geisl'um ís og hjarn.
Indæl ásýnd þín, yfir heiminn skín
litla saklausa jólabarn.



Eeen nóg um það! Jólin á morgunn, omg sko! haha, svona næstum allavega. En eiginlega alveg ótrúlegt bara.. svo stutt síðan desember byrjaði og tíminn hreinlega flýgur bara áfram. Áður en maður veit af verða Sigrún og HannaJóna komnar aftur og byrjaðar að æfa með oss á ný.
Gulla komin! Váá það var sko feitt knús sem hún fékk;) enda langt síðan síðast. Allavega æðislegt að hún sé komin aftur, og núna Harpa líka! og hún verður alveg þangað til í janúar, gerist varla betra;)
Stuð á æfingum og góður mórall sko.. svona eiginlega alveg allavega, en bara mjög fínt. Jóiþjálf er definetly að meika moníj eins og menn segja í sveitinni!

 

Sambandi við síðustu viku þá var hún nú bara svona hógvær að mestu. Maður var að laga til græja fyrir júlen [sem eru á mrg btw:o] Meistaraflokkspartý var hjá Helgu á miðvikudaginn. Jólapúkk og kósíheit [par exelans:P] og voða gaman. Spjölluðum heilmikið og bara stemmari! Takk fyrir það stúlkur* En svo var farið í verslunarleiðangur og verslað feeeeiiiiitt! Neinei en fundum allavega jólagjafir, svona handa flestöllum! Oooog leikurinn á mánudaginn fór 4-2 [fyrir Þór] En það var klikkað gaman að fara inneftir og spila á stóóóórum velli! Þó það hafi nú verið slatta erfitt. En sem sagt góður leikur og áttum nú kannski ekki alveg vona á þessum úrslitum fyrir leikinn en svona erum við seigar! ..hefði meira að segja frekar átt að fara 3-3 samkvæmt munnmælum en ekki alltaf sanngirni í boltanum..

Ætli við förum þá ekki að segja þetta nóg í bili. Smáá tilkynningar samt :

- ef þið viljið skoða myndirnar þá ráðlegggjum við ykkur að nota sveitalubbar.central.is því það virkar þannig og er bara betra =)*

- endilega að commenta*

- jólablogg á morgunn*

- JÓLIN á morgunn!!!*

- Hafið það gott og sofiði vel þrátt fyrir spenning*

- Elskum ykkur*


Varð bara að setja þessa mynd! svoo sæt!! Elva Rut dóttir Dúnu [systir Gígju;)] Mesta snúlla og dúllukrútt í heimi! Elska þig sætust;** og þig Dúna mín, og sakna ykkar! og elskum ykkur öll!! haha =)

Því maður hefur nóg annað að gera en að blogga á þessum eina og sanna aðfangadegi látum við þetta magnaða blogg bara halda sér..

GLEÐILEG JÓL
 gott og farsælt komandi ár.
Við sveitalubbar þökkum liðnar stundir á árinu sem er að líða;*

 


Gígja og Ragna
jólalubbar!*


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 16:55:28 / sveitalubbar

Stúlkan orðin 16 ára;*

,,Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Gígja,
hún á afmæli í dag <3"

Í dag eru 16 ár síðan fallega stelpan hún Gígja kom í heiminn, í tilefni að því vil ég óska henni innilega til hamingju með afmælið;** <3 Vona að þú eigir góðan dag og njótir hans í botn! Vil líka þakka þér fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og þú ert algert æði ástin mín;** elskjúú sæta mín, kossar og knús <3 Þín Ragna..
_____________________________________________________________________________
Jæja þá erum við loksins komnar í jólafríí :D:D ..prófavikan var erfið nokk, lásum frekar mikið en það var nú ekkert létt því maður var í svo miklu jólaskapi og átti erfitt með að halda einbeitingunni en þetta þurftum við víst að gera þannig það þýddi ekkert annað en taka þetta með trompi! Allavega erum við sáttar með einkanir og vitum ekki betur en að við höfum náð öllu (Ragna á eftir að fá úr ensku samt, vonum það besta þar) ;) Svo þessi önn hefur verið góð í alla staði og liðið ekkert smá hratt, okkur finnst við allavega bara ný byrjaðar í skólanum!
Við við höfum haft það gott í jólafríinu, ekkert búið að gera nema slappa af og láta jólaskapið stjórna ferðinni:) Það á nú samt eitthvað eftir að gera en það kemur og það þýðir ekkert stress, er það nokkuð!?
Um helgina fór Ragna á diskó hjá FSH og það var fínt að dansa smá, þó mest með henni Dagný bara, við tókum nokkur vel valin:P ..flestir nokkuð drukknir þannig! Svo var tekið á því í laufabrauðinu um helgina þó fótboltaæfing hafi þurft að eyðileggja það fyrir manni í ár, en nokkrar kökur náði maður að skera út! Við allavega komumst að því að drengirnir okkar kunnu ekki að skera í laufabrauð án hjálpargagna, ekki nógu gott það:P En svo er stefnt á bretta ferð í vikunni, pakka ferðir og allt þetta sem þarf að gera fyrir jólin.
Í kveld erum við svo að fara að keppa inná Akureyri við Þór í æfingaleik, það verður bara gaman og þýðir ekkert nema hörku og gleði í þeim leik;) Svo er það bara jólafrílingurinn, æfingar og hafa það gott næstu daga! Við allavega ætlum að hafa það gott á afmælidaginn hennar Gígju sætur!;*
Höfum í bili ekkert meira að blogga handa ykkur, kemur svo eitt gott jólablogg vonandi um jólin og annar hafið það bara gott og ekki missa ykkur í jólastressinu :D jólaknús á ykkkur;*

Hahaha við síðan á litlujólunum í fyrra, úldnar og sætar*
Ragna&Gígja..

» 11 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 23:06:00 / sveitalubbar

Komdu um jólin ..

..I just want you for my own
More than you could ever know
Make my wish come true
All I want for Christmas is you...
You baby"

Þá loksins kom maður sér á stað til þess að blogga eitthvað, en annars nennir maður því ekkert mikið þar sem jólin nálgast og jólafríið og nóg annað að gera hjá manni, en maður leyfir sér þetta nú:D..

En um síðustu helgi var árshátíðin í Laugaskóla! Við ásamt henni Örnu Benný vorum allar saman í Hamraborg og biðum eftir og vonuðum að Fanney okkar kæmist norður en fluginu var frestað vegna veðurs. Því miður gat Fanney ekki komið og það var mjög leiðinlegt að hafa hana ekki með í gjélluhiittingnum:$:S En við gerum okkur að algerum gjéllum og uðrum rosa sætar :D Hlustuðum á jólalögin og vorum að fýla okkur í potn og svo á meðan við biðum eftir drengunum var hlustað og dansað með Hönnu snúnu Hönnu með honum Bjögga Halldórs, klikkar seint;)

     

Þegar á Breiðumýri var komið var setið og spjallað og rosa gaman, svo var borðað þennann dýrindis mat, lá við að maður bara spryngi í kjólnum! En svo voru tilnefningarnar og við sveitalubbar voru þar tilnefnar en hún Gígja vann íþróttaálfur, krútt og dugnaðarforkur og Ragna var þar í 2. og 3.sæti þannig;) Tinna sæta valin Ungfrú Laugaskóli og Ívar var Herra Laugaskóli:D Fullt af tilnefningum. Vistaratriðin voru svo sýnd og þau voru öll voða fín þó Trölli neðri hafið gengið smá of langt. En við enduðum sem sigurvegarar og unnum því þennann hluta vistarkeppninar með Britney atriðinu okkar;)
Starfsfólkið með feikna gott atriði! ..svo var bara spjalla og teknar myndir og notið kveldsins:D Allvega rosa góð árshátíð þarna á ferð ;* Komum svo með fullt af myndum þegar tími gefst að láta þær allar inn;)..

 

En núna eru það bara æfingar, en Gígja er að hvíla vegna meiðsla í baki svo hún hreyfir sig ekki alveg á næstunni :S ..en æfa og læra er aðal atriðið næstu viku áður en maður kemst í jólafrí, sem verður alveg æðilsegt :D Kemur vonandi massíft blogg eftir allt álagið sem er framundan!

En njótið öll helgarinnar og missið ykkur ekki í gleðinni!:D En við segjum þetta gott í bili og segjum þessu lokiið ;) Nokkrar myndir frá árshátíðinni..

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 16:31:47 / sveitalubbar

er spenningur í mönnum!?

*Without love
Life is like the seasons with
No summer
Without love
Life is rock 'n' roll without
A drummer*

..jæja þá er nóvember að taka enda og jólamánuðurinn að taka við! Þetta er ótrúlegt hvað tíminn hefir flogið og það eru að koma jól sem voru bara um daginn. En svona er þetta og maður hefur brátt lokið fyrstu önninni sinni í framhaldsskóla, sem er nú bara nokkuð gott höldum við stöllur allavega!..getum ekki annað sagt en að það er komin þreyta í fólk í skólanum enda svo stutt í frí, en það er líf og fjör og gleðin og allt það er alveg að taka yfirvöldin hjá manni;) Getum ekki annað sagt en að við séum kátar og hressar!

 

En síðasta helgi fór nú bara mest í afslöppun hjá okkur kjéllunum, og getum sagt að það var EKKI slæmt svona einu sinni(a) ..allavega áttum við góða og kósý helgi;*
Vikan fór lílka bara nokkuð mikið í rólegheit, ekki mikið að læra þannig séð og erum næstum búnar með skammtinn og nokkrar vinnustofur bara búnar að vera rólegar. Eigum alveg efni á því að hafa það rólegt og gott því annars bara deyjum við!
En Gígja fór til læknis á þriðjudaginn útaf auka beinunum í löbbunum og þarf nú að ganga með svona sílíkon á milli tánna :haha:hahaha ..en vonum að þetta lagi það og verkina!..

 

hahaha árshátíðaratriðið okkar í fyrra í grunnskólanum*


Í gær vorum við svo að taka upp frábæra vistaratriðið okkar! oooo það var svo gaman og mikil snild hvað maður gat gert sig að algeru fífli, allavega vorum við að fýla okkur í þessu! VIð og Heiða vorum þarna með algert sjów og svo var Jonni að klippa þetta í dag og þetta er alveg magnað þó þetta sé ekki alveg full klárað en þetta verður held ég bara flott:D Okkur allavega hlakkar til að sjá þetta á morgun..

 

Við og elskulegu vinkonur okkar Arna og Rakel á árshátíðinni í fyrra*

Á morgun er svo árshátíðinni mikla og það verður algert æði:D en við bloggum um hana síðar og segjum þessu skemmtilega bloggi líka lokið í bili, munið bara að commenta elskurnar;**


Ragna&Gígja*


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 19:35:31 / sveitalubbar

.. but now I\'ve taisted chocolate and I'm never going back!*

It's hairspray!*

Kannski bara beeeesta myndin eða? allavega mjööög nálægt því!

Laugamótið var haldið þarna á föstudaginn. Byrjaði kl 16:20 og mættu Hamralingar í Eflingarbúningum ready for the game sko. Byrjuðum rétt fyrir 5 og vorum í B-riðli. Kepptum fyrst á móti Völsungi 2 [ Berglind - Helga - Ágústa - ErnaJóna - GuðrúnHelga ] Töpuðum honum með 2-3 mörkum og vorum greinilega ekki alveg eins redí og við héldum!
En svo kepptum við á móti 2 Þórs-liðum og unnum þau alveg með rústi sko (a) svona án gríns samt:) og vorum þá komin í 8 liða úrslit.

Þar mættum við Völsungi 1 [ Hafrún - Kiddý - Gunna - AnnaGuðrún - Halldóra ] og unnum þær og vorum þá komin í úrslit um 1. sætið, eins og í fyrra. Og eins og í fyrra mættum við Völsungi 2. Það endaði jafntefli og fór í framlengingu eins og í fyrra. En þær unnu okkur í framlengingu með 1 marki! Ekki eins og í fyrra!!! og var mjööög svekkjandi.. en svona er það bara :) fengum 2. sætið og erum sáttar með það (a)
Takk fyrir mótið og daginn allir :**:)



Á laugardaginn var svo laugamót hjá körlunum Það byrjaði 9 um morguninn og þá mættum við ferskar og hressar.. og unnum alveg stanslaust á klukkum til 3! Fengum svona 40 mín. frí í mesta lagi og fórum svo á tímann og töfluna það sem eftir var mótsins og vorum að koma heim milli 8-9 ca. Þannig það var laaangur og erfiðuuur dagur! En gaman bara :)

Á sunnudaginn var svo hvílt sig! mmm það var næs.. nema Ragna fór að vinna á nóvembermóti á Húsavík og hitta Elfar sinn sem var ekki heima um helgina út af e-hrjum u19 æfingum as always.. haha:D! Um kvöldið fórum við svo á 10.bekkjar leikritið á Húsavík --> Biblía unga fólksins*
Fínasta sýning og bara gamnan. Hrannar & DavíðHelgi að meika það í söngnum, án gríns :)

Svo byrjaði vikan og bara læra læra læra æfingar æfingar læra læra æfingar! svona ca. byrjar hún og endar! Enda alveg að koma jóóól!:O en maður meikar þetta alveg.. verið róleg :)

Í næstu viku er líka 1.des.hátíð í Þróttó eða föstudaginn 30. nóv. og þar verðum við einmitt með sjóv (a) en við erum búnar að vera að æfa á þessu leiklistarnámskeiði sem er búið eftir laaangan tíma! En samt gaman á því sko. Og gaman að sjá hvernig þetta kemur út.. heh!;$
Og einmitt það kvöld er árshátíð Laugaskóla. Það verður sko klikkað stuð á henni. Við + ArnaBenný + Fanney græjum okkur án efa saman líkt og í fyrra og nú fáum við unglömbin að fara með:D voða gaman.

Viljum enda þetta á að óska Birki frá Rifi - city til hamingju með afmælið, en hann er einmitt 17 ára í dag:) Til hamingju hr. Gjöööðveikur;):*<3



En ætli við segjum þetta ekki bara nóg í bili. Minnum á Nýjast* dálkinn og endilega að commenta hjá okkur og segja skoðun ykkar (a) elskumykkur <3

 

*Hey look out for that moving van
driving down the streets
You better lock up your man
before he meets:
The new girl in town!..*

Gígja & Ragna <3


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 26
Nýjast*-
> Blogg 23. apríl*
> Nýjar myndir í "Myndasöfn" frá Konukvöldi Völsungs 15. mars*
PRÓFÍLL
 http://images2b.snapfish.com/232323232%7Ffp53247%3Evq%3D3289%3E%3A%3C3%3E6%3C%3A%3EWSNRCG%3D3236%3A9%3C285389vq0mrj
Nafn: Gígja og Ragna
  • Staður: Laugar
  • Atvinna: Nemar
  • Hjúskaparstaða: föstu;*
    Um okkur: HæHæ, við erum tvær sveitastúlkur sem búum á Laugum og í sveitinni hjá Laugum. Við erum á íþróttabraut við Framhaldsskólann á Laugum á fyrsta ári. Æfum fótbolta með mfl. kvenna hjá Völsungi og erum alveg á fullu í íþróttunum og höfum verið þannig nokkuð lengi;)
    Báðar á föstu með drengjum frá Húsavík sem heita
  • Hallgrímur(Gígja) og Elfar(Ragna).
  •  http://images2b.snapfish.com/232323232%7Ffp53249%3Evq%3D3289%3E%3A%3C3%3E6%3C%3A%3EWSNRCG%3D3236%3A9%3C282693vq0mrj
  • Við getum voða sjaldan sagt nei og erum því í flest öllu sem við getum og erum því frekar uppteknar manneskjur er okkur sagt! 
  • Annars erum við bara nokkuð hamingjusamar manneskjur og lifum í
  • ást og friði <3
    http://images2b.snapfish.com/232323232%7Ffp53248%3Evq%3D3289%3E%3A%3C3%3E6%3C%3A%3EWSNRCG%3D3236%3A9%3C2826%3A%3Avq0mrj  http://images2b.snapfish.com/232323232%7Ffp53249%3Evq%3D3289%3E%3A%3C3%3E6%3C%3A%3EWSNRCG%3D3236%3A9%3C2826%3A4vq0mrj